sunnudagurinn 5. september 09 2010

         

 

 Sækjum gögnin til þín!


Þjónusta alla leið


Tætið sjálf!

Nú geta viðskiptavinir okkar tætt sjálfir gögnin sín í öflugum tætara. Tætarinn er hannaður til að taka allt að 20 blöð í einu, bakkar ef bunkinn er of þykkur og getur tætt geisladiska, bréfaklemmur og gorma.

Kr. 2.000 + vsk fyrir 30 mínútur.


 

 Staðsetning

 Bæjarflöt 4


 

 

Aðili að:

 

Rafbúnaður sem geymir gögn

 Næsta ferð á Suðurland 13. apríl

Gagnaeyðing hvetur aðila sem þurfa að farga rafbúnaði, svo sem tölvum, farsímum, ljósritunarvélum, faxtækjum, skönnum og öðrum búnaði sem á einhverjum tíma taka við upplýsingum til rafrænnar vinnslu, að gæta þess að förgun búnaðarins sé örugg. Gagnaeyðing tekur á móti slíkum búnaði til förgunar sem felur í sér tætingu og síðan endurvinnslu.

Í grein á vefsíðunni www.euobserver.com 15. apríl, þar sem fylgst er með þróun mála innan Evrópusambandsins, kemur fram að endurskoðuð WEEE tilskipunin (Waste Electrical and Electronic Equipment) kveður ekki á um vernd persónuupplýsinga þegar rafbúnaði sem geymir upplýsingar er fargað, eingöngu endurvinnslu hans.

Peter Hustinx, sem fer með málefni tengd upplýsingavernd (data protection) innan Evrópusambandsins bendir á að endurbætt tilskipunin, eins og hún er núna, fjalli alfarið um áhrif förgunar rafbúnaðar á umhverfið en ekkert um hættuna á að óvandaðir aðilar komist yfir búnaðinn og þær persónuupplýsingar sem á honum kunna að vera.

Haustinx hvetur til þess að taka persónuverndarsjónarmið upp í endurskoðun tilskipunarinnar, m.a. með því að krefjast þess að notendur geti með einföldum hætti eytt út öllum upplýsingum af búnaðinum áður en honum er fargað og að viðskipti með slíkan rafbúnað verði bönnuð nema að búnaðurinn hafi áður verið meðhöndlaður með tilliti til varðveislu persónuupplýsinga.


Ný tegund gagnaíláta

Ný tegund stærri gagnaíláta, 360, 240 og 120 lítra, sem uppfylla vottunarkröfur NAID. Ílátin eru ljósgrá á lit. Nánar



Einnig bjóðum við minni ílát, 60, 76 og 87 lítra, sem henta vel undir og við skrifborð eða prentara. Nánar



Gagnaeyðing í umhverfisvernd

Endurvinnsla pappírs er umhverfisvæn. Hvert tonn af endurunnum pappír kemur í stað 17 trjáa. Frá árinu 1991 hefur Gagnaeyðing sent um 6.500 tonn af tættum pappír til endurvinnslu að lokinni eyðingu gagna sem samsvarar því að 110.500 tré hafi sparast. 

 


Gagnaeyðing - Vottað fyrirtæki

Gagnaeyðing ehf er AAA vottað af alþjóðlegu samtökunum NAID, National Association for Information Destruction. Vottunin stað- festir að verklag, aðstaða og öryggisráðstafanir Gagnaeyðingar uppfylla kröfur NAID til gagnaeyðingarfyrirtækja. Upplýsingar um  vottunina er að finna á vefslóðinni: http://naidonline.org/certification.html 

.

Bresk könnun sýnir að 97% starfsmanna fyrirtækja þar í landi efast um að fyrirtæki þeirra...
Frétt á Stöð 2 um trúnaðarskjöl sem fundust í ruslagámi við Þingvöll. Tengill...
Á ráðstefnu NAID 10. - 12. september í Budapest kom fram í máli Joaquin Bayo Delgado (Deputy European Data...

Límbönd til að loka kössum.

Kr. 763 / stk + vsk

Kassar undir gögn, passa vel á skrifborð eða í hillur.

            

Kr. 313 / stk + vsk