Aðild að samtökum
Gagnaeyðing á aðild að þrennum samtökum sem starfa á sviði skjalastjórnunar og stöðlunar.
Félag um skjalastjórn (IRMA) www.irma.is
Markmið Félags um skjalastjórn er að efla þekkingu og skilning á skjalastjórn hjá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum; ennfremur að efla tengsl þeirra sem starfa við skjalasöfn og stuðla að samvinnu þeirra á milli. Félagið stendur fyrir námstefnum og fræðslufundum um ýmsa þætti skjalastjórnar
National Association for Information Destruction (NAID) www.naidonline.org
NAID eru alþjóðleg samtök fyrirtækja sem veita þjónustu á sviði gagnaeyðingar. Fyrirtæki sem bjóða vörur, þjónustu og búnað til gagnaeyðingar eru einnig gjaldgeng í samtökin. Markmið NAID er að kynna gagnaeyðingariðnaðinn og staðla og starfsreglur meðlima sinna.
Staðlaráð Íslands. (IST) www.stadlar.is
Staðlaráð Íslands er vettvangur stöðlunar og samræmingar á Íslandi.