Staðlar
Gagnaeyðing fylgist vel með þróun staðla, sérstaklega þeim sem varða meðhöndlun trúnaðarupplýsinga.
Íslenskir staðlar
Þýddir hafa verið á íslensku þrír staðlar sem eru áhugaverðir í þessu samhengi, þ.e.
- ÍST ISO/IEC 17799:2005 (27002) - Upplýsingatækni; – Öryggistækni - Starfsvenjur fyrir stjórnun upplýsingaöryggis
- ÍST ISO/IEC 27001:2005 - Upplýsingatækni; – Öryggistækni, – Stjórnkerfi upplýsinga, – Kröfur
- ÍST ISO/TR 15489-2:2001 - Upplýsingar og skjalfesting - skjalastjórn - 2. hluti: Leiðbeiningar
Staðlaráð Íslands veitir nánari upplýsingar um þessa staðla www.stadlar.is
Staðlar í undirbúningi
Staðlasamtökin BSI hafa unnið að staðlinum BS8470 Secure destruction of confidential material um eyðingu trúnaðargagna. Fylgst er með þeirri vinnu.