Móttaka og flutningur

Gögn móttekin í starfsstöð Gagnaeyðingar
- Við afhendingu eru gögnin vigtuð og gefin út staðfesting fyrir móttöku og afhendingu þeirra, þ.e. blað sem er áritað af starfsmanni Gagnaeyðingar og viðskiptavini.
- Ef þess er óskað, þá er eyðing gagnanna sett í forgang og getur þá viðskiptavinur fylgst með framkvæmd eyðingarinnar um sjónvarpskerfi.
Gögn sótt til viðskiptavinar
Gagnaeyðing sækir gögn til viðskiptavinar þegar hringt er (sími 897 2803) eða samkvæmt samkomulagi.
- Þegar gögn eru sótt teljast þau móttekin eftir að gengið hefur verið frá þeim í sendibifreið, henni læst og móttökukvittun gefin út (bleikt afrit afhent viðskiptavini). Þegar þess telst þörf vegna aðstæðna og/eða eðli gagnanna er mælt með að viðskiptavinurinn fylgist með flutningi þeirra út í bifreiðina.
- Í starfsstöð Gagnaeyðingar eru gögnin vigtuð og magnið fært inn á móttökukvittunina og frumrit hennar sent með reikningi.
ATH!
Allir starfsmenn Gagnaeyðingar bera skírteini með nafni viðkomandi og mynd.
Sýnishorn af starfsmannaskírteini

Sýnishorn af móttökukvittun