Reglubundin eyðing
Margir af viðskiptavinum Gagnaeyðingar hafa óskað eftir reglubundinni þjónustu um eyðingu trúnaðargagna. Í þeim tilfellum fer starfsmaður Gagnaeyðingar með viðskiptavininum yfir það hvaða fyrirkomulag henti best.

Atriði sem þá eru skoðuð:
- Tegundir gagna sem verða til í starfseminni og þarf að farga
- Magn gagna
- Hvernig best er að standa að söfnun gagna innan fyrirtækisins
- Öryggisráðstafanir við söfnun, móttöku, flutning og eyðingu gagna
- Afhending gagna, flutningur og eyðing
Í reglubundinni þjónustu er jafnan undirritað samkomulag milli fyrirtækjanna um framkvæmd þjónustunnar, skyldur og ábyrgð.
Sæmundur veitir nánari upplýsingar um reglubundna þjónustu (sími 897 2803).