sunnudagurinn 5. september 09 2010

         

 

 Sækjum gögnin til þín!


Þjónusta alla leið


Tætið sjálf!

Nú geta viðskiptavinir okkar tætt sjálfir gögnin sín í öflugum tætara. Tætarinn er hannaður til að taka allt að 20 blöð í einu, bakkar ef bunkinn er of þykkur og getur tætt geisladiska, bréfaklemmur og gorma.

Kr. 2.000 + vsk fyrir 30 mínútur.


 

 Staðsetning

 Bæjarflöt 4


 

 

Aðili að:

 

Saga

Stofnun og upphaf

Gagnaeyðing ehf var stofnað 5. janúar 1991 í 80 fm húsnæði í Ármúla. Fyrsta starfsárið bárust 93 tonn til eyðingar, sem þá var eytt í BOA DATA DEST tætara sem var handmataður. Hann tætti hámark 5-7 mm þykka bunka í einu og pakkaði hálfsjálfvirkt kurlinu í plastpoka sem vógu 20 kíló. Vogin sem gögnin voru vigtuð á var 50 kg vog með u.þ.b. 300 x 400 mm pall. Móttaka og eyðing á einu tonni af gögnum var dagsverk fyrir 2 menn.

 

Þróunin

Á öðru starfsári, árið 1992, var orðið ljóst að mikil þörf var fyrir þjónustuna, húsnæðið orðið of lítið og auka þurfti afköstin. Þá flutti Gagnaeyðing í 530 fm húsnæði í Skútuvoginum sem var sérstaklega aðlagað starfseminni með móttöku, vinnslusal og skrifstofum. Húsið var búið fullkomnu öryggiskerfi og var öðrum en starfsmönnum óheimill aðgangur að vinnslusal. Nýr búnaður var keyptur til eyðingarinnar, sem þó stóð ekki fyllilega undir væntingum. Fyrstu árin á nýjum stað gekk vinnslan því hægar en áætlað var, eða allt þar til nýr tölvustýrður tætari var keyptur.

Vinnslan

Í dag er eyðingarferlið að stórum hluta sjálfvirkt, gögnin eru sett á færiband sem mata tölvustýrða tætara. Frá tæturunum berst kurlið í stóra pressu. Pressan þjappar kurlinu í 500 kg bagga og er þeim staflað með lyftara í stæður sem bíða þar til kemur að hleðslu þeirra í 40 feta gáma. Gámarnir eru fluttir með skipum til Evrópu og þar er pappírinn endurnýttur.

Gagnaeyðing flytur í nýtt húsnæði 2007

Í nóvember 2007 flutti Gagnaeyðing úr Skútuvoginum í nýtt húsnæði að Bæjarflöt 4, Grafarvogi, sem hentar sérstaklega vel fyrir starfsemi Gagnaeyðingar og býður upp á ýmis tækifæri til frekari þróunar hennar. Verður þar t.d. verslun með vörur tengdar gagnaeyðingu og gagnavörslu. Allar öryggisráðstafanir á nýjum stað eru af vönduðustu gerð.

Vottunin

Í október 2008 fékk Gagnaeyðing alþjóðlega vottun fyrir eyðingu trúnaðarskjala og tölvubúnaðar.
Samtökin NAID, National Association for Information Destruction, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum og starfsemi um allan heim, tóku út starfsemi Gagnaeyðingar og starfsaðstæður í október 2008 og vottuðu að þær uppfylltu kröfur samtakanna um örugga eyðingu trúnaðarskjala og tölvubúnaðar (AAA Certified). Sá staðall sem vottað er eftir nýtur víðtækrar viðurkenningar fyrirtækja og opinberra aðila.


Gagnaeyðing - Nýtt útlit

5. janúar 2007 fagnaði Gagnaeyðing 16 ára starfsemi í eyðingu trúnaðarskjala og annarra gagna.

Í tilefni af þessum tímamótum kynnti fyrirtækið nýtt vörumerki, nýtt útlit og nýjan vef. Vörumerkið er innrammað nafn fyrirtækisins í hástöfum með DIN Engschrift-Alternate leturgerð. Því er ætlað að undirstrika þá festu og afmörkun sem eyðing trúnaðargagna kallar á. Á nýju bréfs- og kynningarefni, nýjum vef og bílamerkingu er notuð grafík sem endurspeglar nýja strauma og áherslur í mikilvægi gagna og gagnastjórnunar í starfsemi fyrirtækja.


 

Bresk könnun sýnir að 97% starfsmanna fyrirtækja þar í landi efast um að fyrirtæki þeirra...
Frétt á Stöð 2 um trúnaðarskjöl sem fundust í ruslagámi við Þingvöll. Tengill...
Á ráðstefnu NAID 10. - 12. september í Budapest kom fram í máli Joaquin Bayo Delgado (Deputy European Data...

Límbönd til að loka kössum.

Kr. 763 / stk + vsk

Kassar undir gögn, passa vel á skrifborð eða í hillur.

            

Kr. 313 / stk + vsk